gleđilegt nýtt ár
hæ hæ og gleðilegt nýtt ár allir saman :) takk fyrir gömlu góðu :)
já mín skellti sér á 90´s ballið um áramótin, það var hevy mikið stuð en reyndar var ég alveg búin á því eftir allan gauraganginn þetta kvöld. við vorum heima hjá mömmu og pabba fram yfir miðnæti, borðuðum geðveikt góðan mat. fórum svo í partý til mikka, vorum þar í dágóða stund. skelltum okkur svo á 90´s þegar allir voru komnir í stuð. og auðvitað endaði kvöldið á nonna-bitum og svo skuttlaði ég ella, haffa og begga heim eftir herleg heitin.það var mikið dansað og tjúttað í léttri 90´s sveiflu þetta kvöld. hehe...
en vá maður var alveg nokkra daga að jafna sig eftir svona djamm, ég fór svo að vinna 2 janúar og var klárlega ekki búin að ná nógum svefni yfir hátíðirnar. en þetta er allt að koma svona með kalda vatninu. eg er orðin nokkuð góð núna :)
svo er það bara næstu helgi.. danmörk here I come... hí hí...
við erum semsagt að fara madonnurnar og boðflennuklúbburinn saman til köben í helgarferð. það verður heldur betur mikið stuð. :)
Andri er bara búin að vera drukkna í prófum undanfarna daga.. hann er búin að fara í 5 próf núna og er búin að ná þeim öllum og á bara 5 próf eftir. hann tekur 2 próf á föstudaginn og 3 á mánudaginn og þá bara kviss bæng búng.. kallinn búin með einkaflugmannsskólann. vá hvað mér hlakkar til þegar hann klárar þessi próf, þá getur maður kannski farið að gera eitthvað skemmtó með honum, hann er BARA búin að vera læra eins og mófó.. ekki alveg það skemmtilegasta.. hmmm...
en já fyrir þá sem vita ekki eða eru ekki búin að frétta það. sem eru örugglega mjög fáir því svona fréttir dreifast alltaf svo geðveikt hratt.. en aðal slúðrið þessa dagana er að það er komið eitt stikki bumbubúi í mallann minn.. rosa spennó!! :) við erum allavega bæði hevy spennt..
en já ég kveð að sinni.. skrifa kannski nokkrar línur þegar ég kem heim frá köben..
bæts..
90´s ball á nasa um áramótin er algerlega máliđ :)
loksins er þessu jólabrjálaði lokið, þið getið ekki ýmindað ykkur hvað ég er fegin. eins og það er gott og gaman á meðan jólahátiðinni stendur, að éta á sig gat og fá fullt af flottum pökkum, en brjálaðið fyrir jól er valla mannlegt..
mmmhhh... við setóstúlkur eigum pantað borð á ítalíu í kvöld klukkan 7. það verður geggjað nice eins og venjulega..
maður er ekkert hættur að éta á sig gat, dí hvernig endar þetta?? úff held það sé ræktin á nýju ári.. heheen eitt er víst að áramótin eru bara hérna handan við hornið.. hvað er planið hjá skemmtilega og fallega fólkinu?? endilega kommentið og segið mér hvað planið er.. hí hí..
við andri verðum heima hjá mömmu og pabba fram yfir miðnæti, kíkjum svo í eitthvað partý og endum svo á nasa á 90´s balli... ALLIR AÐ KOMA Á 90´S BALL, ÞÚ KAUPIR MIÐA Á MIÐI.IS... SKILDUMÆTING FYRIR ALLT FÓLK SEM KANN VIRKILEGA AÐ DJAMMA..
ok þá er það komið á hreynt.. hmmm...
en mér dettur ekkert meiri skemmtilegt í hug í bili, það er líka kominn timi til að klæða sig og gera eitthvað að viti, er það ekki málið?? hmm..
heyrðu heyrumst og sjáumst allir á nasa um áramótin... :) bæts...
dofna týpan :)

en ég er víst óvenju góð miðað við marga aðra, því tannlæknirinn minn trúði mér varla þegar ég svaraði öllum spurningunum neitandi.. svimar þig? er þér kallt? ertu að svitna? treystiru þér til að keyra? .... og þannig hélt þetta áfram..
venjulega finnur fólk fyrir einhverju eftir þetta, held ég... einhverjar reynslusögur???? heheen Vala eitt sem er víst er að það verður ekki drukkið þessa helgina, ég yrði dauðadrukkinn við eitt skot.. hehe.. hvað ætlar fólk að gera um helgina??
en vá bylting.. Elli er komin með myspace og Edda og Rúnar með nettengingu,, ótrúlegir hlutir að gerast hér á bæ...
til hamingju 
en ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.. bæts!!!!
búúú...!!!
en vá hvað maður er búin að vera duglegur á djamminu þessa dagana, þessar vinkonur mínar eru búnar að vera soldið djammsjúkar undanfarið.. hehe.. kannast einhver við það hér á bæ????
en vá hvað var málið á laugardaginn... ég fór í vinunna um morguninn, og klukkan 3 þegar ég var að labba þaðan út var geggjað veður og ég komst nátturulega í gírinn og langaði skyndilega að fara gera eitthvað geggjað skemmtilegt... hringdi í eitthvað að vinum mínum. keypti á grillið og þrumaði í mjólkurbúðina... við, andri, beggi og elli grilluðum í grenjandi rigningu því sólin var bara gjörsamlega búin að segja bless við okkur en við þrjóskuðumst við þetta og drukkum mohito í rigningunni
svo þegar leið á kvöldið kom fleira af fólki og stuðið byrjaði.. þegar klukkan var komin yfir miðnætti þeysuðumst við á aroma, þar var einhver hljómsveit (svaka stuð) og svo þegar það var lokað á okkur þar skutumst við í bæjinn og tókum nokkra snúninga þar.. og enduðum nottla með að henda einni pizzu í grímurnar á okkur og svo í leigubíla-röðina og þar með heim.. þetta kvöld heppnaðist bara mjög vel. langt síðan það var svona skemmtilegt að fara í bæjinn og alleis.. hmmm.. 
en svona í alvörunni er ég að pæla í að fara í smá drykkjupásu, ég er ávallt til eitthvað stuð en ég bíð mig fram sem driver.. hvernig lýst líðnum á það???
Ţórdís farđu varlega í útlöndunum, stelpa!!!

þessi helgi var frekar tjilluð hjá mér.. á föstudaginn hittumst við fullt af fólki á aroma og borðuðum saman geggjað góðan mat, við vorum alveg tuttugu og eitthvað komin saman til að kveðja litlu Þórdísar okkar því hún er enn og aftur flúin úr landi... Skvísan er að fara flytja til danmerkur, ætlar sér að vera aupear í orhus í níu mánuði minnstalagi, kellan er alveg orðin klikk... hún er ný komin heim frá spáni sem hún var í fimm mánuði... hvernig er þetta eiginlega eftir að enda þórdís mín..?? hehehe
Á laugardaginn byrjaði mín aftur í ræktinni eftir langa pásu, vá hvað það er erfitt að byrja aftur eftir allt sukkið í sumar.
Þegar ég var búin að hlaupa af mér allt vit fór ég heim til jóa bróa og klippti litlu rúsínurnar mínar, þær eru algert æði....en um kvöldið fórum við andri, edda og rúnar á kfc, bara svona til að fagna því hvað ég var búin að vera dugleg í ræktinni.. hehehe maður er nú meiri aulinn
... svo fórum við heim til eddu og rúnars, beggi slóst í hópinn og strákarnir ákváðu það að fara á FILLERY.. við fíbluðumst eitthvað fram yfir miðnætti, RÚNAR DÓ
HAHA og svo skutluðum við strákunum á aroma og þeir máluðu bæjinn rauðann og við edda fórum heim að sofa
hehehe... hressandi kvöld ...svo er ég núna heima eitthvað að reina að mixa í tölvunni og bíða þangað til andri vaknar upp frá dauðum, hann er að kálast af þinnku greiið... hehe
en svo er það hittingurinn á morgun heima hjá elsu, saumóhittingur stelpur... sýnist að það verði bara mjög góð mæting...
vonandi komumst við allar, það er alltaf svo gaman hjá okkur... ííhhhhaaaa...en já.. er hætt að baula í bili... bætsss
hćbs ég er mćtt í hús!!!
jæja hvað segiði svo fliparnir mínir?? ég segi allt bærilegt..
það hlýtur margt búið að gerast síðan síðast því það er ekki búin að vera mikill afgangstími þessa dagana..
eins og flestir vita er ég og andri búin að kaupa okkur nýjan bíl, geggjaðan pæjubíl
við keyptum okkur toyota avensis, silfur gráan... ég held ég sé búin að taka pæjurúnt með flestum.. en auðvitað eiga einhverjir inni hjá mér pæjurúnt, ég er ávallt til 
vá hvað það var gaman um helgina.. á laugardaginn var ég allann daginn uppí laugardalshöll að horfa á keppnir, skoða bása og hitti auðvitað bönnnss af fólki.. ég, stína, hildur, sigga kolla og lóa kíktum á macdonalds í hádeginu, auðvitað þurftum við að sukka aðeins vist við vorum saman komnar
heheÁ laugardagskvöldið hópuðumst við stelpurnar (ég, agla, svana, heiðrún og thelma) til völu í keflavík. hún var að flytja í háskólakverfið sem herinn átti. vá hvað allt er stórt þarna, herbergin huge stór, eldavélin og ískápurinn í sama stíl. hehe.. það er geggjað kósý hjá þeim, æi hún og Halli eru nottla algert æði, algerar dúllur.. við ætluðum feitt að fara djamm á ljósanótt en svo var bara svo geðveikt gaman hjá okkur að spjalla heima hjá völu þannig við, svana, agla og vala tókum bara sýnishorn á keflavík í þetta skipti, röltum snöggt inná tvo staði og svo lá leiðin bara í bæinn aftur.. en mjög vel heppnað kvöld..

á sunnudeginum fór ég aðeins með eddu í búðir, til að leita að einhverju til að vera í um kvöldið, því þá vorum við að fara á einhvern voða galadinner með alskonar fólki. s.s. hárgreiðslufólki, snyrtifólki, fatahönnuðum, gullsmiðum og fleirum . Ég greiddi brynju því hún var líka að fara þangað, svo var svana svo góð að farða mig, edda greiddi mér og ég henni.. svo var agla svo geðveikt góð að lána mér geggjaðan BLÁAN kjól, þannig að ég var alger tískubomba..
hehe Vá ok þegar maður var loksins ready, þetta tók nottla allan daginn, eins og flestar stelpur þekkja.. fórum við ásamt staffinu á Hárný í matinn og svo var palli að dj-ast.. djöfull er hann geðveikur.. þetta var svo ógeðslega gaman.. ég dansaði af mér rassgatið.. allir sem voru þarna.. TAKK FYRIR SÍÐAST!!!!
en já svo er ég byrjuð á annari hárgreiðslustofu. ég er byrjuð að vinna á hárný, hún er á nýbýlaveginum í kópavogi, ég fýla mig bara ágætlega þar.. allt miklu nýtískulegra þarna.. allt gert í tölvum, nudd við vaskstólana, video fyrir börnin meðan maður klippir þau, skáir í tveim speglum, meirisegja er kaffivélin einum of flókin fyrir mig í bili.. hehe... þetta kemur allt með kalda vatninu hjá mér..
hey díí.. það sem andri tekur ekki uppá.. kallinn er farin að læra einkaflugmanninn. skólinn er að byrja á fullu þessa dagana. hann er í bóklega-dæminu fram í janúar, 3 sinnum í viku. svo þarf hann að taka 60 tíma í verklega kaflanum. ég er komin með far til eyja á næsta ári.. hehe
hvað er málið.. er í tísku að vara óléttur.. mér finnst allir vara óléttir.. það er rosalegt þegar liggur við meirihlutinn af okkur stelpunum með bumbu.. hehe
segji svona.. mér fynnst það geðveikt gaman, bjöllurnar fara örugglega að klingja þegar maður fer að storma á fæðingardeildina að skoða litlu dúllurnar og þá komum við, restin af stelpunum, allar með bumbu..
hehe en allavega.. ég er komin með illt í puttana, ég er búin að blogga svo mikið.. hehe
heyri í ykkur dúllurnar mínar..
endilega kommentið, ef þið hafið eitthvað skemmtilegt að segja, ekkert endilega sem tengist blogginu, alltaf gaman að heyra eitthvað slúður..

kellingin búin ađ setja myndir inná netiđ :)
endilega kíkjið, þær eru inná www.123.is/laufeyh...
eyjapeyjinn mćttur
ég sit heima núna, er að vinna í því að jafna mig eftir helgina. Eins og flestir vita skellti ég mér til eyja, djammaði úr mér líftúruna, og kom fárveik heim.
Vá hvað þetta var geðveikislega geðveik helgi. Við fórum í herjólf á föstudeginn, enginn ældi nema þórdís mín, hún var algert grei. Við tjölduðum í dalnum í rokinu, það gekk svosem ágætlega, nema partýtjaldið rifnaði í drasl. en sem betur fer vorum við með annað auka stórt tjald sem við notuðum sem partýtjald, þannig að partýið reddaðist mjög vel. Sko... fyrsta kvöldið var mesta rugl kvöldið, fólk komst að því að það var ekki að muna eftir helmingnum af kvöldinu, ég held að það er hægt að kenna bleika fílnum um það (trektinni sem fékk að vera með í för)
hehe það gerðist margt skondið það kvöld, við heldum að það væri búið að stela öllu, ipotnum, gettóblasternum, gítarnum, áfenginu, matnum okkar, bíllyklunum gjörsamlega öllu... nema hvað, við vorum svo útur heiminum þegar við yfirgáfum tjaldið um kvöldið að við mundum ekki eftir að það var farið með græjurnar út í bíl til að tryggja að því yrði ekki stolið. þannig að ég, andri og binni fórum inní öll tjöld að leita að stuffinu okkar um morguninn þegar við komum heim, vorum ógeðslega reið. svo voru græjurnar allar í bílnum en það var samt búið að stela öllum matnum og slatta af áfengi, en það er bara smotterí miðað við hvað við heldum.. en eftir fyrstu nóttina færðum við okkur yfir í garðinn hjá brynju og danna og heldum feitt partý þar, það var miklu metra og öruggara, nenntum ekki þessum áhyggjum.. hehe
Þórdís var alveg búin á því eftir fyrstu nóttina, bæði veik og þunn þannig að hún pantaði flug heim á laugardeginum...
vá svo var þetta bara djamm út í gegn, það gerðist svo margt sem er ekki hægt að lýsa í orðum, verðið bara að skoða myndirnar.. hehe
hey ég hitti toby.. hehe
ég ætla að setja myndirnar inn á netið á morgun, þá sjáiði stuðið, þetta var geðveikt, það á enginn skilið að missa af þessu, heyriði það stelpur (agla, vala, hildur og þið skvísur )
en vá ég er samt komin í feita filleríspásu, ég skal koma með ykkur á tjúttið en ég skal vera driver, skilið!!! hehe
kv. laufey
hćhć aftur!!!
hæ hæ mín bara mætt aftur á bloggar.is.. 
jæja það er margt búið að ganga á síðan sísst.. Við stelpurnar fórum í útilegu á hallgeirsey, það var skrautlega gaman..
Það stendur margt uppúr úr þeirri ferð... að sjálfsögðu er hún fræga Valgerður er mjög eftirminnileg, trekt 103 var vinsæl á svæðinu, gítarpartýið, sleikurinn hennar Thelmu 07.07.07 klukkan 07.07, Hallærisdanskeppnin (vá stelpur, harðsperrurnar sem komu daginn eftir, hehe), og svo getur maður örugglega talið endalaust..
Síðustu helgi brunuðum við andri á flúðir til ömmu og afa hans andra, afi var sjötugur og öll fjölskyldan mætti á svæðið, það var hevy gaman. Soðið sig í pottinum, borðað góðan mat, sungið og drukkið fram á nótt, það eru margir fjörfiskar í þeirri familyu... 
Hey Sonja á afmæli í dag.. hibb hibb húrra, skál fyrir henni... til hamingu með daginn rúsinu-bollan mín...
Næsta helgi ætla ég að tileinka sossu!! höldum upp á afmæli.. jibbý 
Vá svo fer að líða að þjóðhátið, það er eiginlega ískiggilega stutt í það.. ó mæ gad!! Þetta verður góð þjóðhátið, allavega góð mæting af skemmtilega og fallega fólkinu
eru ekki allir orðnir spenntir????
ps. hey bara svo þið vitið, ætla ég að halda mig við að blogga og solleis hér á bloggar og svo eru myndirnar á 123.is, læt ykkur ávallt vita þegar eitthvað nýtt kemur í hús.
Bara svona í leiðinni, HALLGEIRSEY MYNDIRNAR ERU KOMNAR Í HÚS.. www.123.is/laufeyh ...
kvikindiđ er búin ađ skipta um pláss, kíktu!!
Ég er að prufa að skipta um síðu. ég er búin að færa mig á www.123.is/laufeyh af því það er miklu þægilegra að skella myndum inná þá síðu, tekur miklu minni tíma og er örugglega fínt að prufa hana..
endilega kíkið yfir á hana :)
